Tölvuskólinn iSoft Þekking

Tölvuskólinn Þekking býður uppá fjölbreytt tölvunámskeið

Flýtilyklar

FJARKENNSLA

Fjarkennsla í beinni   -  aldrei verið einfaldara

Þú ert heima hjá þér og við sendum þér tengil í tölvupósti.  Þú smellir á hann og ert þar með kominn inn í kennslustofu hjá okkur sem fullgildur nemandi. 

Þú sérð og heyrir allt sem fram fer í kennslustofunni; kennarann, skjá kennarans, töfluna og samnemendur.  Einnig tekurðu beinan þátt í kennslunni í umræðum eða með því að leggja fram munnlegar fyrirspurnir.  Þú getur sjálf/ur verið sýnilegur í stofunni sértu með vefmyndavél en það er ekki skilyrði. 

2-3 dögum fyrir námskeiðsbyrjun færðu sendar kennslubækur og stundatöflu. Próf eru einnig tekin beint sé um diplomnám að ræða sem krefjast prófa.

Flest námskeið skólans verða í boði í beinni fjarkennslu á vorönn 2010.  Haustið 2009 voru  nemendur í "beinni" m.a. frá Hellissandi, Ólafsvík, Bíldudal, Sauðárkrók, Dalvík, Ársskógsströnd, Akureyri, Vík, Vestmannaeyjar og Sandgerði. Þeir luku námi á tilsettum tíma í Skrifstofunáminu, Grafískri hönnun, Bókhald, Navision og Vefsíðugerð.

Sjá umsagnir nemenda hér

Vinsamlegast hafið samband við okkur ef frekari upplýsinga er þörf:

Sími: 511-3080
Postur: tsk@tsk.is
Vefur: www.tsk.is

Framsetning efnis

  • A
  • A++

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf