Flýtilyklar
Leit
Um skólann
: : Við um okkur
Tölvuskólinn iSoft - Þekking ehf
Kt. 670300-2260
Skeifan 11b, 108 Reykjavík
Rekstur Tölvuskólans Þekkingar á höfuðborgarsvæðinu færðist undir Tölvuskólann iSoft frá og með haustinu 2008 og mun starfa framvegis undir nafninu Tölvuskólinn iSoft-Þekking.
Tölvuskólinn iSoft-Þekking stefnir að því að vera leiðandi í símenntun í tölvu- og upplýsingatækni - frá byrjendum til sérfræðinga - og að útskrifa nemendur með jafnt hagnýta sem fræðilega þekkingu í tölvu og viðskiptagreinum sem gerir þá eftirsótta á vinnumarkaði.
Tölvuskólinn iSoft-Þekking leggur áherslu á traust tengsl við atvinnulífið með því að hafa hverju sinni á að skipa jafnt reyndum kennurum með kennsluréttindi úr íslenska skólakerfinu, kennara með alþjóðlegar vottanir sem og færustu sérfræðinga af vinnumarkaði hverja á sínu sviði.
Próf og viðurkenningar:
Öllum námskeiðum skólans lýkur með afhendingu viðurkenningarskjals og verða nemendur að uppfylla skilyrði um amk. 80% mætingu til að fá þau afhent.
Ýmsum námskeiðum skólans, þar sem sérstakrar vottunar er þörf, lýkur með prófum og er þá í flestum tilfellum stuðst við stöðluð alþjóðleg próf.
Alþjóðleg próf:
Skólinn er viðurkennd prófamiðstöð fyrir "ECDL" próf sem eru stöðluð evrópsk próf í helstu skrifstofuforritunum. Þessi próf voru áður kölluð "TÖK". Nánari upplýsingar um ECDL prófin hér
Einnig er skólinn vottuð prófamiðstöð fyrir tvær af stærstu prófamiðstöðvum heims: Prometric, sem prófar færni í m.a. kerfisfræði,netstjórnun, Cisco ofl. og Pearson VUE
Sími: 511-3080
Fax: 511-3081





