Flýtilyklar
Leit
Fjarkennsla í beinni
Þú ert heima hjá þér og við sendum þér tengil í tölvupósti. Þú smellir á hann og ert þar með kominn inn í kennslustofu hjá okkur sem fullgildur nemandi.
Þú sérð og heyrir allt sem fram fer í kennslustofunni; kennarann, skjá kennarans, töfluna og samnemendur. Einnig tekurðu beinan þátt í kennslunni í umræðum eða með því að leggja fram munnlegar fyrirspurnir. Þú getur sjálf/ur verið sýnilegur í stofunni sértu með vefmyndavél en það er ekki skilyrði.
2- 3 dögum fyrir námskeiðsbyrjun færðu sendar kennslubækur og stundatöflu. Próf eru einnig tekin beint sé um diplomnám að ræða sem krefjast prófa.
Flest námskeið skólans verða í boði í beinni fjarkennslu á vorönn 2010. Haustið 2009 voru nemendur í "beinni" m.a. frá Hellissandi, Ólafsvík, Bíldudal, Sauðárkrók, Dalvík, Ársskógsströnd, Akureyri, Vík, Vestmannaeyjar og Sandgerði. Þeir luku námi á tilsettum tíma í Skrifstofunáminu, Grafískri hönnun, Bókhaldi, Navision tölvubókhaldi, Almenna tölvunáminu og Vefsíðugerð.
Sjá umsagnir nemenda hér





