Tölvuskólinn iSoft Þekking

Tölvuskólinn Þekking býður uppá fjölbreytt tölvunámskeið

Flýtilyklar

Umsagnir nemenda fjarkennslu

Ólafur Tage Bjarnason,  Tröröd kollegiet, 2950 Vedbæk, Danmark 
Sl.  haust (2009) tók ég 2 námskeið hjá Tölvuskólanum iSoft, Photoshop námskeið og svo í framhaldi af því Dreamweaver. Þar sem ég er búsettur erlendis tók ég þessi námskeið í fjarnámi og var viðstaddur allar kennslustundir í gegnum netið. 
Ég byrjaði á Photoshop námskeiðinu og gekk það einkar vel enda hafði ég smá grunn í því forriti sem gerði það auðveldara að fylgja þeim sem voru í staðarnámi. Seinna námskeiðið sem ég sótti var Dreamweaver, ég hafði aldrei opnað það forrit fyrr en í fyrstu kennslustund og tók smá tíma að kynnast umhverfinu en eftir það þá gekk allt að óskum. Til að ná sem mestu útúr námskeiði mæli ég með að þáttakendur kynni sér forritið aðeins áður en námskeið hefst. 
Ég mæli hiklaust með fjarnámi Tölvuskólans iSoft, vel var staðið að öllu og einkar liðlegt starfsfólk sem þægilegt er að leita til ef aðstoð er þörf. 
 
Guðmundur Einarsson,  Sandgerði   (Skrifstofunám)
Ég mæli hiklaust með þessu kennslufyrirkomulagi. Þetta kemur ótrúlega vel út,það er nánast eins og maður sitji í skólastofunni með kennaranum. Fyrir utan það að maður þarf ekki að klæða sig til að fara í skólann eða keyra marga kílómetra.

Valdís Erla Eiríksdóttir,  Árskógssandi  (Skrifstofunám)
Það að getað stundað nám í gegnum fjarkennslubúnað eins og er hérna í Tölvuskólanum er alveg frábært. Ég bý úti á landi og hefði ekki haft kost á þessu námi öðruvísi.  Var í skrifstofunámi í vetur og er það mjög hagnýtt og markvisst nám, með fyrsta flokks kennurum og starfsfólki. Þetta nám á alveg örugglega eftir að nýtast mér vel í framtíðinni.  Í Tölvuskólanum er svo ótal margt í boði og á ég alveg örugglega eftir að skoða það í framhaldi af skrifstofunáminu.  Enda höfðum við á orði fjarnemarnir að þetta væri svo skemmtilegt að við tímdum bara einfaldlega ekki að hætta. Takk kærlega fyrir mig.

Framsetning efnis

  • A
  • A++

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf